
ET VERSLUN
Sérverslun með varahluti í vörubifreiðar og vagna ásamt því að bjóða upp á frábært úrval af kösturum og vinnuljósum.
ET Verslun býður upp á varahluti í flestar tegundir vörubifreiða ásamt því að sinna ýmsum sérpöntunum og innflutningi á þeim.
Við erum einnig umboðsaðili Ledson á Íslandi sem er orðið eitt þekktasta merkið í kösturum og vinnuljósum og má því sjá vörur frá okkur á mörgum tækjum flestra björgunarsveita, stórum hluta jeppaflota íslands sem og vörubifreiða sem sinna akstri allan sólarhringinn allan ársins hring.
VÖRUMERKI
LEDSON
LEDSON ljósin eru flestum íslendingum í trukka og jeppabransanum vel kunn þar sem hér eru á ferð framúrskarandi vörur frá frændum okkar í Svíþjóð.
RIGID Industries
RIGID industries er framúrskarandi ljósaframleiðandi í Bandaríkjunum sem býður upp á hágæða ljóskastara og ledbari fyrir krefjandi aðstæður.